Hæ allir
Hvernig líst ykkur á að við höldum smá útihátíð á svölunum í Vesturberginu á föstudagskvöldið fyrir þá sem eru í bænum af háksmeðlimum um verslunarmannahelgina. Ef við myndum bara hver koma með kjöt eða eitthvað fyrir sig á grillið og bara hittast og hafa það gaman.
Ef það er áhugi fyir þessu látið þá endilega vita í commentum.
Sjáumst þá vonandi hress og kát annað kvöld
kveðja Bryndís
fimmtudagur, júlí 28, 2005
Inni- og útihátíð
Birt af Ólöf kl. 10:46 f.h. |
mánudagur, júlí 25, 2005
Pay up
Howdy kids, ég flyt skilaboð frá fyriheitna landinu...var að spjalla við Ruben.
Planið er að ganga frá ferðareikningnum sem allra fyrst þannig að þeir sem eiga eftir að greiða inn á hann þurfa að gera það. Þið getið spurt Ólöfu hvort ykkar upphæð er öll komin inn.
Er ég að gleyma einhverju ??....gæti verið....allir komnir með vegabréf ?..........Er ekki planið að hópurinn hittist allur áður en við leggjum í hann ?....Komast allir kvöldið fyrir, Ruby Thuesday´s eða Friday´s ?
One to beam up
Fjalar
Birt af Elsa kl. 9:51 e.h. |
miðvikudagur, júlí 20, 2005
Heimboð
Halló Stelpur, ég kem hiem á mánudaginn 25. Júlí. Þann 26 júlí er öllum boðið í heimsókn til mín svo ég þurfi ekki að fara heim til allra eins og ég geri alltaf þegar ég kem heim. Þær sem eiga börn geta látið pabbana vera heima og þið stelpurnar komið til mín, fyrirgef Thelmu samt alveg með nokkra daga gamalt barn. Þær sem eru bissí geta bara rent við, þið þurfið ekkert að eiða öllum deginum hjá mér! Eru þetta nógu skýr skilaboð.
Sé ykkur seinna
Ásta
Birt af Ólöf kl. 10:24 e.h. |
þriðjudagur, júlí 19, 2005
Alþjóðlegt ökuskírteini!!!
Sælar skvísur og USA farar ;o)
Var að tala við Ólöfu um daginn og þá kom í ljós að hún gleymdi að sækja um alþjóðlegt ökuskírteini...þannig að það er spurning hvort það er einhver einn í viðbót sem væri til í að sækja um það svo það séu fjórir bílstjórar. Ætli ég skelli mér ekki með mína mynd á morgun svo ég nái nú að fá skírteinið áður en ég fer út en endilega finnið einhvern einn í viðbót sem er til í að vera vara bílstjóri :o)
Annars er bara allt fínt að frétta af mér. Erum að bíða eftir svari með það hvort Óli komist til Boston eða ekki :oS en við vonum bara það besta :o)
Mamma og pabbi ákváðu að skella sér til Mallorca og ætla þau að fara 27. júlí og vera í tvær viku. Hringdu í Heiðu Björg um helgina og buðu henni með, sem hún auðvitaði þáði. Ekki amalegt að vera eina barnabarnið hehehe.
Svo er ég bara orðin voða spennt og get varla beðið eftir því að komast út...JÍHA
ADIOS AMIGOS
Birt af Nafnlaus kl. 1:19 e.h. |
laugardagur, júlí 16, 2005
fimmtudagur, júlí 14, 2005
TIL HAMINGJU MEÐ PRINSESSUNA THELMA, JÓI OG RÚNAR ÖRN
Hjartanlega til hamingju með skvísuna. Það verður gaman að sjá hvort hún líkist bróður sínum eitthvað. En vá hvað hún er lítil... bara algjör mús :o) Hún hefur bara ákveðið að leyfa þér að batna aðeins áður en hún kæmi í heiminn, mjög tillitssöm ung dama hehe.
Bíddu hitti einhver á réttan dag....ef ekki þá megið þið alveg nota Sigurveigar nafnið ;o)
Birt af Nafnlaus kl. 3:40 e.h. |
mánudagur, júlí 11, 2005
Takk fyrir helgina
Hæ allir og takk fyrir komuna í sveitina. Við skemmtum okkur mjög vel og ótrúlegt að hægt sé að rúma heilan matarklúbb í fortjaldinu á tjaldvagni Bryndísar og Rúnars. Rigninginn skemmdi svolítið fyrir, en ef það hittir á betri veðurdag í sumar eru þið afar velkomin í heimsókn í sveitina, ég lofa ís og sundferð.
Ég er alltaf jafn óheppin, í gærkvöldi þegar ég var að sækja Grím á fótboltavöllinn, og sat í bílnum með drepið á vélinni. Það var maður sem var að fara inn í jeppa fyrir framan mig og horfði á mig svolítið áður enn að fór inn í jeppann. Eins og hann væri að reyna að vita hver ég væri. Svo ræsti hann jeppann og keyrði áfram. Allt í einu setur hann í bakkgír og bakkar beint á mig. Ég kveikti á bílnum í dauðans ofboði og næ að ýta á flautuna akkúrat þegar kúlan á bílnum hans var að brjóta framljósið. Þá var hann bara alveg búinn að gleyma mér þarna. Var alveg miður sín greyið. Grímur var útá fótboltavelli og fannst þetta voða fyndið, þar til hann sá hvaða bíl var verið að klessa.....
En ég er með gott réttingarverkstæði og þeir ætla að laga bílinn fyrir mig á morgun þannig að hann nær ekki að vera klesstur í lengur en 48 klst. Verkstæðið heitir Bílaréttingar Gunnars og Björns og er á Bíldshöfða 14 ef þið þurfið á að halda. Og þessi indæli en þó svo utanviðsig maður á fótboltavellinum borgar.
Kveðja Dögg
Birt af Ólöf kl. 1:17 e.h. |
fimmtudagur, júlí 07, 2005
Hryðjuverkaárás í London í morgun!!! :-(
Jahérna hér.....þetta hættir bara aldrei. Vona bara að það verði ekki meira um sprengjur þar í dag eða framvegis. Er búin að reyna að ná í Ástu en ég næ ekki símasambandi við hana, en Ásta ef þú sér þetta blogg, endilega láttu nú vita af þér þannig að maður fari nú ekki að deyja úr áhyggjum hér heima. Það verður meira um þetta í 12 fréttum á eftir, en vonandi hafa ekki margir látist í dag.
Jæja vonandi heyrum við í Ástu sem fyrst.
Birt af Thelma kl. 10:59 f.h. |
þriðjudagur, júlí 05, 2005
Sveitaklúbbur
Það stefnir í ágætisveður um helgina og stefnt er á matarklúbb á laugardagskvöldið kl 20.00. Bærinn heitir Brautarhóll og er fremst til vinstri í Reykholti. Leiðin er mjög einföld, þið keyrið yfir Hellisheiðina og að Selfossi. Rétt áður en að komið er inn á Selfoss beygið þið til vinstri inn undir fjallið og keyrið sem leið liggur í gegnum Grímsnesið og áfram beygjulaust þar til þið keyrið inn í Reykholt.
Sumir ætla að mæta kvöldið áður og tjalda á lóðinni. Það verður þá séns á skoðunarferðum, sundferð og ferð á pöbbinn. Fín uppbót fyrir útileiguna sem við erum ekki enn búin að fara í í sumar.
By the way, góða ferð til USA ÓLöf, þín verður sárt saknað næsta mánuðinn. Og Thelma, damnn ég tapaði veðmálinu.......
Kveðja Dögg
Birt af Ólöf kl. 6:23 e.h. |
mánudagur, júlí 04, 2005
Jæja Thelma
Er nokkuð farið að gerast hjá þér...manst að halda henni inni í 6 daga í viðbó ;o)
Hvað segiði...hvað eigum við að hafa í pottinum :o)
Birt af Nafnlaus kl. 12:45 e.h. |
miðvikudagur, júní 29, 2005
Ungfrú Thelmudóttir
Jæja skvísur. Svo er bara spurning hver verður næst deginum :o)
Ásta 19. júlí
Bryndís 12. júlí
Dögg 5. júlí
Elsa 15. júlí
Ólöf 13. júlí (en vonar að hún komi fyrir 6. júlí)
Sigurveig 10. júlí
Nú er bara að bíða og krossa fingur ;o)
Já og svo þurfum við auðvitað að fá niðurneglda dagsetningu frá Dögg...
Þangað til næst...tata
Birt af Nafnlaus kl. 6:01 e.h. |
mánudagur, júní 27, 2005
Næsti matarklúbbur
Jæja mathákar
Við Grímur bjóðum til matarklúbbs í sveitinni aðra helgina í júlí. Maturinn verður á laugardagskvöldið. Það er risastórt tún við bæinn sem við getum haldið útileigu (og salerni og sturta í íbúðarhúsinu). Allir velkomnir fyrr ef þið viljið lengri útileigu. Þið mætið með eigin tjöld. Það er sundlaug á staðnum sem er mjög fín, fullt af góðum gönguleiðum og hverfisbar. Einnig verða mánaðargamlir hvolpar sem skemmtiatriði og ef rignir er öruggt húsaskjól hjá Bjarna og Oddnýju.
Rúnar, Bryndís, Elsa og Fjalar og við Grímur ofcourse erum pottþétt. Thelma og Jói geta kíkt í bíltúr með nýju dömuna , sem ég stend fast við að komi í heiminn þann fimmta, og auðvitað Rúnar junior. Ef daman er ekki komin í heimin þá fékk ég þær upplýsingar frá ljósunum á spítalanum að skurðstofan á Selfossi er lokuð í júlí en fæðingardeildin er opin. Það tekur max um 1 klst og 10 mín að komast á lansann frá sveitinni en ég hef farið þetta mun hraðar með sjúkraflutningamönnunum á selfossi. (Bara svona til að róa Jóa). Ef Sigurvdeig er að vinna um helgina þá er mjög stutt´fyrir hana að fara og við getum svo kíkt á sýninguna og jafnvel farið í dýragarðinn í slakka eða eitthvað svipað.
Kvepja Dögg
Birt af Ólöf kl. 11:14 e.h. |
þriðjudagur, júní 21, 2005
Hvernig er með helgina!!!
Hvað segiði...er einhver útilegufílingur í ykkur!!! Á að skella sér eitthvað um helgina. Ég verð víst ekki að vinna um helgina þannig að ég kæmist örugglega...veit ekki alveg hvað Óli gerir þar sem hann er að fara í veislu á föstudaginn og laugardaginn...kemur bara í ljós.
Annars sjáumst við bara á Thorvaldsen á morgun ;o)
Birt af Nafnlaus kl. 4:22 e.h. |
mánudagur, júní 20, 2005
Á leið í frí í Borgarfjörðinn
Hæ hæ
það er allt fínt að frétta af mér, þetta er búin að vera ágætis helgi. Ég var í barnaafmæli í dag og borðaði auðvitað yfir mig af kökum og öðru góðgæti. Á laugardaginn gengum við litla fjölskyldan upp Laugarveginn, það er nú bara frétt vegna þess að ég geri það eiginlega aldrei sem er synd. Við vorum í smá gjafaleit að útskriftargjöf og innflutningsgjöf. Við enduðum svo reyndar í Kringlunni þar sem gjafirnar fundust. Ég fékk reyndar eitt óvenjulegt tilboð þessa helgi, ég var spurð hvort ég vildi taka þátt í tískusýningu. Aldrei hélt ég að ég ætti eftir að fá þessa spurningu. En þessi tískusýning fer fram við varðeld á Bryggjuhátíðinni á Drangsnesi og sú sem sýnir fötin gerir þau sjálf úr skinni og þæfðri ull, hún er listakona frá Akureyri. Já hvað finnst ykkur ætti ég ekki bara að slá til, ég er ekki búin að svara en ég held ég hafi bara gaman að þessu og geri bara einu sinni eitthvað öðruvísi, það verða hvort sem er allir komnir í glas og muna ekkert eftir þessu daginn eftir, segjum það allaveganna :)
En ég og Geirmundur ætlum nú á morgun að skella okkur í heimsókn í Borgarnes til Helgu vinkonu og vera eitthvað fram eftir vikunni. Ég læt ykkur svo vita varðandi matarklúbbinn vonandi sem fyrst. En eitt að lokum ég var víst nr. 9998 ohhh næstum því.
Síjú girls soon
bæjó og hafið það gott.
kveðja Bryndís
Birt af Ólöf kl. 1:38 f.h. |
laugardagur, júní 18, 2005
10.000 gesturinn nálgast....
Verður það ein af okkur?? Einhver óvæntur gestur kannski?? Hver veit. Ég hvet allaveganna 10.000 manneskjuna að kommenta undir þessu bloggi. Úje.
Birt af Ólöf kl. 1:56 e.h. |
fimmtudagur, júní 16, 2005
Blogg fyrir Ástu :o)
Sælar skvísur. Af mér er þetta að frétta...nældi í æluna í morgun en ég lét mig nú hafa það að mæta í vinnuna. Skilaði svo því sem ég hafði borðað í morgun rétt eftir að ég var mætt á svæðið og er svei mér þá bara öll að hressast :o)
Annað: það er ekkert að gera í vinnunni. Hef ALDREI orðið svona brún áður en við Auður höfum legið úti á svölum í vinnutímanum og safnað brúnku. Ok þetta hefur verið meira út í rautt heldur en brúnt hjá mér en þetta er þó einhver litur. ENDILEGA KÍKIÐ Á SÝNINGUNA Í SOGINU UM HELGINA. ÞIÐ GETIÐ FENGIÐ KAFFI, DJÚS OG KEX OG EF ÞIÐ ERUÐ GÓÐ FÁIÐ ÞIÐ BOL JIBBÍ JEI.
Jæja ætla að fara að gera eitthvað þar sem það er að koma hópur á eftir (about time).
Ta ta darlings
Birt af Nafnlaus kl. 3:15 e.h. |
miðvikudagur, júní 15, 2005
Grill heima hjá okkur á 17.júní!!
Jæja þá erum ég og Jói búin að ákveða að bjóða þeim háksmeðlimum sem vilja og geta að koma heim til okkar næsta föstudag (17.júní)....áður en haldið er niður í bæ um kvöldið.......að grilla á nýja grillinu okkar. Nema auðvitað að Bryndís og Rúnar ætla að halda matarklúbb þá.....þá endilega látið okkur vita.
Annars vorum við að hugsa um að allir kæmu með kjöt eða eitthvað annað á grillið fyrir sig og sína (og líka kartöflur hjá þeim sem vilja), en við Jói ættum að geta reddað salati og sósu sem meðlæti. HVERNIG LÍST YKKUR HÁKSMEÐLIMUM Á?? Endilega að kommenta sem fyrst hvort og hverjir ætla að koma og hverjir ekki.
Annars er bara allt gott að frétta af okkur héðan úr Engjaselinu og það er ekkert lát á því að kúlan hætti að stækka....held barasta að það sé breyting á hverjum klukkutímanum sem líður....hehehe!! Á morgun er síðasti vinnudagurinn minn....jibbý, jey!! Enda er löngu kominn tími á að ég fari í smá frí svo að barnið fari nú ekki að koma of snemma í heiminn, enda ekki nema um 4 vikur eftir (+/-2 vikur).....
Birt af Thelma kl. 8:21 e.h. |
Bannað að hætta að blogga
Það er skylda að blogga ALLT, bloggustu blogg. Endilega að blogga allt sem gerist. Plíííís bloggiði annars veit ég ekkert hvað er að gerast. Blogg þarf ekkert að vera langt, ekki heldur komment svo endilega að blogga meir.
Hérnamegin er ekkert spennandi að gerast, allt í rólegheitum og bjallan og bjöllusófinn bara tilbúin held ég. Þarf að laga möppuna mína áður en sýningin byrjar og gera flotta ferilskrá (eða hvað sem þetta heitir á íslensku...) Svo er bara hefí djamm næstu helgi. Hvernig er djammið hjá ykkur, grill og svona á sautjánda?
Já ein frétt, ég fæ smá vinnu í tvær vikur í júlí...launað eða ólaunað veit ekki alveg en það kemur í ljós.
Látið nú heyra í ykkur!!!!!
Birt af Ólöf kl. 7:31 e.h. |


