mánudagur, ágúst 15, 2011

Café Elsa

Jæja þá er hittingur á miðvikudaginn heima hjá Elsu kl 20:30. Við þurfum virkilega að hittast núna og er fínt að gera það í heimahúsi. Það væri upplagt að halda þetta út veturinn þar sem við vorum búnar að gera tilraun að hittast á kaffihúsi reglulega...en það datt upp fyrir. Kanski þetta haldist betur þennan háttin. Allaveganna, þá ætla ég að koma með kryddbrauð ala Dögg og væri ágætt ef einhver annar gæti keypt gos. Elsa ætlar að baka eða kaupa sæta köku og ef einhver annar vill kaupa meira af einhverju þá má það.
Endilega látið vita hvort þið komist og sfv.

laugardagur, júlí 16, 2011

"kaffihús" heima hjá mér næsta fimmtudagskvöld 21.júlí :-)

Jæja skvísur aðeins að lífga upp á bloggið okkar :-) Ólöf mætti í afmæli Söru Daggrósar í dag og okkur datt í hug að halda svona "kaffihúsastemningu" heima hjá mér næsta fimmtudag (vorum reyndar ekki búnar að negla daginn en þetta er hugmynd). Ég verð ein heima með krakkana frá miðvikudegi og í 10 daga á meðan Jói verður í Tyrklandi og langar mig í félagsskap á meðan hehe :-) Endilega látið mig vita ef þetta hentar ykkur eða hentar ykkur alls ekki, en þær koma bara sem komast (samt fínt að vita fjöldann upp á hressingu að gera fyrir ykkur, þá get ég farið að baka híhí). Fínt að mæta um 21, þá ætti allavega Eva Lind að vera sofnuð og hin komin í ró og á leiðinni í háttinn. Svo ætti ég örugglega að getað reddað pössun eitthvert kvöldið ef einhver önnur er svo líka til í að bjóða heim (eða að fara á kaffihús), sem sagt ég er komin með fráhvarseinkenni að hitta ykkur skvísur svona sjaldan og vil ég endilega bæta úr því sem fyrst.....já og ef engin önnur býður sig fram sem gestgjafa er ég alveg til í að bjóða ykkur svo aftur í heimsókn vikuna á eftir áður en karlinn kemur heim :-)


Kveðja Thelma

miðvikudagur, júní 08, 2011

26 júní

Halló allir


Ekki gleyma að lesa póstinn hennar Bryndísar hérna fyrir neðan!!

Við eigum matarklúbbinn í júlí og værum til í að fá að halda hann sunnudaginn 26 JÚNÍ. Við bjóðum í afar einfalt ss-pulsupartý og gefum upp staðsetningu seinna en það verður innan borgarmarka. Þar eð öll börn eru velkomin líka held ég að það sé best að hafa þetta hádegispartý, byrjar um kl 11:00 og verður til kl 14:00. Takið daginn frá

kv Dögg

þriðjudagur, júní 07, 2011

Afmælisboð

Hæ hæ

Við ætlum að hafa smá kaffi á sunnudaginn
í tilefni af 7 ára afmæli Geirmundar :)
Þið eruð velkomin klukkan þrjú og frameftir degi.

Endilega látið mig vita hvort þið komst eða ekki :)

kveðja Bryndís

miðvikudagur, apríl 27, 2011

Sumarbústaðaferð

Hæ
Bústaðarferð 6.7 og 8 maí. Eru allir til í þá dagsetninu? Eru þið spentar fyrir að vera alla helgina eða aðeins eina nótt. Ég veit að Bryndís er upptekin á föstudeginum og mundi þá koma á laugardeginum, það væri bara í fínu lagi. Ég er hugsanlega kanski að byrja á námskeiði í maí, ef ég byrja í maí þá er ég laus um hálf níu. Annars gætum við bara lagt af stað eftir vinnu eða eitthvað. Gætum kanski fengið okkur bara að borða á leiðinni upp í bústað.
Hvað eru þið að hugsa?
Kveðja Ásta

laugardagur, mars 26, 2011

Matarklúbbur ÁRÓ

Góðan dag.
Við erum búnar að ákveða dagsetningu næsta matarklúbbs sem verður þann 16. apríl.

Það er mikilvægt fyrir okkur að hafa nákvæma tölu á því hverjir koma og hverjir koma ekki vegna flókinna matargerðar.

Góðar stundir.
Ásta og Ólöf (og Búben).

þriðjudagur, febrúar 15, 2011

Matarklúbbur

Hæ hæ.

Við ætlum að halda matarklúbb laugardaginn 26.febrúar. Vonum að sem flestir komist. Þetta verður hefðbundinn matarklúbbur þ.a þið megið mæta svöng kl 19:00 :)

Við völdum þennan dag því hann er síðasti helgardagurinn í febrúar svo þið hafið smá svigrúm til að hafa hitting áður ef þið viljið Sigurveig.

Hlakka til að sjá ykkur :)

sunnudagur, janúar 23, 2011

Kaffihús

Hæ skvísur :)

Mig, Thelmu og Bryndísi langar að fara á kaffihús næsta föstudagskvöld. Hvað segið þið hinar? Eigum við ekki að halda áfram að prófa nýja staði? Hvert fóruð þið síðast?

Dögg mín, ég vona að krílið fari að láta sjá sig. Ég fylgist spennt með á facebook og segi bara gangi þér vel! :)

Svo er ég orðin mjög spennt að vita hvenær næsti matarklúbbur verður :) Eruð þið nokkuð búin að ákveða dag Sigurveig?

þriðjudagur, desember 21, 2010

Súkkulaðikaka

200 gr smjör

200 gr súkkulaði
2 egg
150 gr sykur
60 gr hveiti

Aðferð:
Bræðið saman í potti súkkulaði og smjör. Þeytið saman sykur og egg. Blandið saman súkkulaði/smjörblöndu og sykur/eggjablöndu, hrærið hveiti varlega saman við. Setjið
í smurt eldfast mót og bakið í ca. 40 mínútur.
Berið fram strax með ís eða þeyttum rjóma og svo er gott að hafa jarðaber.

Verði ykkur að góðu :)

Okkar kaka í matarklúbbnum var tvöföld uppskrift.

Ég segi bara gleðileg jól :)

fimmtudagur, desember 02, 2010

Jólamatarklúbburinn

Hæ hæ


Við erum að velta fyrir okkur dagsetningu á matarklúbbnum í desember. Það eru einhvern veginn ekki margir dagar sem um ræðir. Það er líka alltaf erfitt að finna dag sem einhver er ekki upptekin. En við ætlum að kanna áhugann hjá ykkur á að mæta á sunnudegi til okkar, þann 18. des, seinnipartinn. Við erum að hugsa um þennan sunnudag vegna þess að líklega er þetta eina helgin sem við komumst vestur. En endilega látið tjáið ykkur hér hvað ykkur finnst um þennan dag, ef það er ekki vinsælt getum við reynt að finna nýjan dag.
kveðja jólasveinarnir í Tjaldhólunum

þriðjudagur, nóvember 23, 2010

Bíóferð part 2

Jæja, vegna fjölda áskoranna þá ákvað ÁRÓ að gera smávægilegar breytingar. Ennþá bíóferð eeeeeen....breyttur tími og önnur mynd. Með góðfúslegu leyfi BR fáum við lánaðan föstudaginn 3. desember, og við förum að sjá myndina RED. Þessari dagsetningu verður ekki haggað þar sem við erum tveimur mánuðum á eftir áætlun af ófyrirsjáanlegum ástæðum.

Vonandi sjáum við ykkur öll.

sunnudagur, nóvember 21, 2010

Bíóferð

Nú er komið að því. Óhefðbundinn matarklúbbur. Á miðvikudaginn 24. nóv ætlum við að hafa bíódag. Við ætlum að sjá Harry Potter í sambíóunum Álfabakka kl 8. Þannig við hittumst þar aðeins fyrr.

Betra er seint en aldrei =)

miðvikudagur, september 29, 2010

mató næsta föstudagskvöld?

Hæ hæ hvernig leggst það í ykkur að hittast næsta föstudagskvöld í óhefðbundinn mató hjá mér og Jóa? Mæting upp úr 9 og það má alveg taka eitthvað sterkt að drekka ef einhver vill. Við verðum með léttar veitingar og kannski að maður taki í nokkur spil og hafi bara gaman :-) Ætluðum að redda næturpössun sem er bara ekki að ganga upp næstu helgarnar, ein amman verður í útlöndum og hin eitthvað þreytt um helgar eftir að vera búin að vinna á leikskóla alla vikuna ;-) Svo erum við sjálf upptekin næsta laugardagskvöld en þá er uppskeruhátið í fótboltanum hjá Val og æskilegt að allir sem eru með liðið mæti, enda eru þær tvöfaldir meistarar í ár annað árið í röð :-) Endilega kommentið hér, veit að þetta er stuttur fyrirvari, en við áttum víst september en ég vildi bíða með að halda mató þar til að Ólöf væri búin að verja mastersritgerðina sína og að Ruben væri aftur kominn heim frá Boston :-) Væri ekki tilvalið að halda upp á þennan merka áfanga hjá Ólöfu í góðra vina hópi :-)


Kveðja Thelma og Jói

þriðjudagur, september 07, 2010

Kaffihúsaferð

Smá mistök hélt ég væri að fara að stroka út en ýtti þá bara á enter og bloggaði Hæ,
jæja en hvað um það. Ég var að spá í næstu kaffihúsaferð, veit ekki alveg hvort ég komist þessa vikuna en farið þið endilega í vikunni ef þið komist. Ég á eftir að verða svolítið óstabíl í þessum ferðum. En allavega kem líklegast ekki í þessari viku.
kveðja Bryndís

hæ

sunnudagur, ágúst 22, 2010

Kaffihúsaferð 26.08

Jæja stelpur er ekki komin tími á að hittast aftur og fá okkur kaffi og spjalla. Hvernig líst ykkur á það? Fimmtudaginn 26.8 svona um 20:30 eins og áður? Nú verðum við að finna annað kaffihús! Við verðum auðvitað að prófa öll í bænum. Kommentið og segið hvað hentar ykkur það þarf ekkert endilega að vera fimmtudagur og Bryndís endilaga láttu vita ef miðvikudagurinn henntar betur í þessari viku =)

K

þriðjudagur, júlí 20, 2010

Kaffihúsaferð

Jæja þá er það kaffihúsaferð á morgun miðvikudagskvöldið 21.júlí. Thelma, Ólöf, Elsa og ég koma. Bryndís kemst ekki en hún kems næsta miðvikudag svo það verður önnur ferð næsta miðvikudag. Allir til í það. Ekkert hefur heyrst í Sigurveigu en vonum að hún komi líka.

Er það þá ekki bara kaffi parís klukkan 20:30. Ef einhver vill stinga upp á einhverju öðru þá er það leyfilegt =)

fimmtudagur, júlí 15, 2010

Það var mikið

Eftir töluverða baráttu við blogger.com til að fá að logga mig inn og skrifa póst þá hafðist það að lokum. Liggur við að það hafi verið mikill léttir að komast loksins inn á Háks síðuna eftir marga google útúrdúra. Gæti þetta verið ástæðan fyrir lítilli umferð hérna inni?


Núna þegar við Grímur mætum orðið sjaldnar í matarklúbba eða aðra hittinga á vegum hópsins þá verður þessi síða bráðnauðsynleg við að koma fréttum til og frá okkur í Gautaborg.

Það gleður okkur að tilkynna að Björk litla verður stóra systir í janúar. Hún á von á bróður eða systur um miðjan janúar. Blessunin hefur nú ekki mikið vit á þessu né áhuga en foreldrarnir eru þeim mun spenntari.

Ég held að með þessum barneignum munum við ná þeim merka áfanga að vera með styst milli barna af öllum pörunum í hópnum, rétt um eitt og hálft ár. Vonumst eftir miklum andlegum stuðningi frá fleiri-barna foreldrum um að þetta muni allt reddast þó að það verði eflaust mikið að gera um nokkra hríð

Knús á línuna
Dögg