Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og
pantar sér í glas. Þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann í
barþjóninn: - Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?
Á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið
blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: - "Áður en þú segir
þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast - af því að þú
ert nú blindur - að ég fræði þig um fáein atriði:
1. Barþjónninn er ljóshærð kona.
2. Útkastarinn er ljóshærð kona.
3. Ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate. .. Og ég er
ljóshærð.
4. Konan við hliðina á mér er ljóshærð og er Íslandsmeistari í lyftingum.
5. Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er Íslandsmeistari í
vaxtarrækt.
Hugsaðu þig nú vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara
þinn?"
Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið og segir:
"Nei, ætli það. Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum."
Mér fannst hann bara nokkuð góður þessi ;o)
Kv. Hákur sex
þriðjudagur, febrúar 03, 2004
Ljóskubrandari
Birt af Ólöf kl. 11:41 f.h.
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|